24.febrúarKatrín Erna Gunnarsdóttir

Já, það er orðið opinbert, ég á 1 mánuð eftir af 22. aldursári mínu. Eftir mánuð verð ég orðin 23 ára og ég held að fátt hræði mig meira þessa dagana. 

Að verða 23 ára er nefnilega ekki bara vitnisburður um hverfandi æsku mína, heldur stór tímamót í lífi mínu. Ég útskrifast með BA gráðu í listfræði og trúarbragðafræði 14. júní næstkomandi, 23 ára að aldri alveg samkvæmt áætlun. Ég reiknaði bara ekki með að þessi tímamót myndu koma svona snemma. Ég er algerlega óviðbúin og á af þessum sökum í gífurlegri tilvistarkreppu. Ég sveiflast eins og api á grein milli þess að vera harðákveðin og algjörlega óákveðin um hvað ég á af mér að gera í sumar og næsta vetur. Ég held að héðan af sé eina von mín sú að með hækkandi aldri muni ég öðlast þá visku sem þarf til að taka þessa ákvörðun. 

Fyrir utan þessa skemmtilegu tilvistarkreppu mína er ég á fullu að skrifa BA ritgerðina mína um altaristöflur á Íslandi auk þess að reyna að dragast ekki aftur úr í hinum kúrsunum mínum og vinna eins og brjálæðingur. 

Lífið í leikhúsinu er ljúft eins og venjulega. Ég fer á hverja leiksýninguna á fætur annarri og hef ekki enn lent á leiðinlegu verki. Ég á það þó til að gleyma að fylgjast með leikurunum vegna þess að ég dett alveg inn í að fylgjast með hvernig leikmyndin er gerð og notuð. 

Svo reiknast mér til að það sé farið að styttast all svakalega í páskafríið, réttar 3 vikur í brottför norður í snjóinn og steikurnar. Ef veðurguðirnir lofa ætla ég helst ekki að koma niður úr fjallinu nema til að borða steikurnar hennar mömmu og páskaeggin mín. Ég skora hér með á hann föður minn að drífa í skíðakaupum svo við getum nú endurlifað gömlu góðu dagana með páskum í fjallinu. 

Og by the way þá vil ég óska öllum konum til hamingju með konudaginn.

Athugasemdir

1
Una skrifar:
Já vá, þú átt alla mína samúð. Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég væri að fara að útskrifast núna! (laaangt í það) En til hamingju samt með að verða fullorðin ;o)

Annars er stúlka að nafni Felicity að setja feitt strik í reikning þessa heimaprófs sem ég á að vera að gera!
24. febrúar 2008 klukkan 17:13

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Leikur dagsins